Auglýsing

Jóladagatalið :P

Ferðalagið

Jólahjól

01. desember 2008 klukkan 15:35
Jájá, Inga komin heim og ég kem heim á laugardaginn. Heimsreisunni er lokið þannig að ég held að það sé best að fara bara aftur heim á gamla bloggið mitt: ragnas.blog.ls

Bestu kveðjur úr baunalandinu
Ragna
 

Sweet Home Alabama...

30. nóvember 2008 klukkan 19:02
Ég ætlaði bara að láta þá sem vildu vita það vita að ég er komin heilu og höldnu heim á Akureyri. Það gerðist ekkert merkilegt á ferðinni minni... Ég náði að eyða klinkinu mínu mjög nákvæmlega og það sat gamall fullur kall við hliðina á mér á leiðinni á klakann... That's about it. Ég hitti Kolfinnu á BSÍ og við slitum jóneindir eða eitthvað álíka gáfulegt og töluðum um anatómíu. Það var fjör :) Í alvörunni sko, mér finnst gaman að hlusta á anatómíutal þrátt fyrir það að ég skilji það frekar takmarkað...

En já, ég er bara komin heim og það er voða kósí. Ég veit hins vegar ekki hvað ég á að gera við mig í heilan mánuð... Ætli mamma finni ekki eitthvað að gera fyrir mig :P

Inga

Use Somebody

24. nóvember 2008 klukkan 18:03
Já kominn tími á blogg? Það eru eiginlega bara tveir hlutir búnir að gerast síðan við skrifuðum síðast.

Á laugardaginn var tónleikadagur, við sturtuðumst og dressuðumst, fórum í bæinn og átuðumst og loks fórum við á MEN (Manchester Evening News) Arena og þó svo að við vorum frekar snemma í því þá vorum við ekki fyrstar. En sem betur fer vorum við ekki síðastar heldur. Við keyptum okkur tour boli og Inga keypti tour skrá (sem voru eiginlega bara myndir af McFly strákunum og svo var skrifað niður hverjir komu að tónleikunum). Svo þegar Inga var búin að ná í miðana fórum við og stóðum í röð. Við vorum mjög framarlega og fljótlega sáum við hvernig anddyrið fylltist þarna fyrir aftan okkur. Svo fórum við bara og fundum okkar sæti, fórum í Hver er maðurinn? og fylgdumst með öllum sms-unum sem táningarnir sendu á töfluna sem hékk fyrir ofan okkur. Það var mjög áhugavert sko. "Scream if you think Danny is fit!" og það heyrðist WOOOOOOOO!!! "It's my 13th concert this year! Beat that!" og það kom WOOOOOO!!! og fleira í þessum dúr. Mjög gaman. Meðal aldurinn var kannski 20 ár, og það voru allar mömmurnar og allir pabbarnir sem drógu aldurinn upp!

Annars voru tónleikarnir bara mjög góðir. Fyrst kom boyband (sem btw Ragna var viss um að hefði dáið út þegar Boyzone og það allt "hætti" (og þá er hún að tala um boyband as in 5 gaurar að syngja, ekkert hljómsveitar rusl :P)) sem hét Avenue og var eiginlega alveg ágætt, alveg skömminni skárra en boyböndin sem voru þegar við vorum litlar, þessir gaurar dönsuðu ekki, þeir hoppuðu! Svo kom hljómsveitin Reemer og söngvarinn var eiginlega full hyper og krípí fyrir okkar smekk. En tónlistin var alveg ágæt. Og svo kom náttúrulega aðalatriðið, McFly. Aumingja Danny og Tom voru eiginlega frekar mikið veikir, en þeir stauluðust samt í gegnum þetta greyin. Inga skemmti sér konunglega og tók fullt af myndum og fullt af video-um á meðan Ragna gat sungið með heilum tveim lögum og eyddi svo restinni af tímanum í að blokka út píkuskrækina til að heyra betur í þeim. En þeir voru góð skemmtun og rosa krúttlegir á tímum.

Í dag fórum við svo í verslunarleiðangur. Við vöknuðum alveg klukkan 9 í morgun og vorum komnar niður í bæ tæplega 11 (við borðuðum morgunmat og svoleiðis heima). Svo fórum við í að versla fullt af jólagjöfum (eða Ragna dró Ingu með sér út um allt því Inga var svo fljót að finna sínar gjafir). Við skemmtum okkur alveg konunglega og erum búnar að redda meirihlutanum af gjöfunum. Svo sliguðumst við heim með þunga poka! Svo á morgun förum við í að pakka niður og ryksuga herbergið. Og vonandi fáum við depositið okkar á morgun (annars erum við bara skrúd :P)... Og svo Kóngsins Köbenhavn á miðvikudaginn :D 

Við viljum líka minnast á það að gellurnar sem búa hérna reykja alveg eins og strompar, oft gera þær það hérna í stofunni en þegar við erum í stofunni fara þær inn í eldhús og opna útidyrnar og reykja svo sínar rettur. Þegar við segjum opna útidyrnar þá meinum við þær opna smá rifu og standa svo inni. Og það stendur út um allt að það er bannað samkvæmt lögum að reykja innandyra í þessu húsi og við óskuðum sérstaklega eftir reyklausu húsnæði. Og það býr löggukona hérna... alveg æði. Og ef einhver kveikir á ofninum þá lyktar húsið eins og það sé að brenna...

En þetta er nóg í bili, skrifum örugglega bara næst þegar við komum til DK, ef við nennum. 

Do Ya

17. nóvember 2008 klukkan 18:59
Já, netið "heima" er ekki alveg að gera sig. Það vill oft ekki tengjast og svo virðist vera takmarkaður tíminn sem við getum verið inn á því af því að það hættir alltaf allt í einu að virka. Þannig að núna erum við í skólanum af því að þar er netið miklu hraðvirkara og maður dettur ekkert út af því *sjö níu þrettán* 

Við erum búnar að taka þá ákvörðun að fara til Danmerkur. Á miðvikudaginn í næstu viku, eftir tónleikana :)  Þar fáum við gistingu hjá systur Rögnu. Inga fer svo heim eftir nokkra daga (ekki alveg búið að ákveða hversu marga) en Ragna verður eftir. Svo er bara planið að vinna... 

Það gerist svo aaaaagalega lítið hérna hjá okkur að við höfum mjög lítið að segja heiminum og ennþá minna að segja hvor annarri. Ú, eitt sem heimurinn veit ekki, í gær eyddum við ekki neinum pening. Við lifðum (djöfull hljómar þetta óeðlilega) á morgunkorni og brauði. Og vatni. Gott það, en útkoman varð að í dag eigum við ekkert til að borða. Erum að fara að versla á eftir. Í gær fórum við líka í svakalega langan göngutúr í leit að einhverju sem hljómar líkt og Arndale Centre (sem er mollið hérna í miðjunni) en bara aðeins styttra (munum aldrei hvað það heitir) í þeirri trú að það væri líka moll eða eitthvað slíkt. En nei, við löbbuðum góðan hring en fundum ekkert. Þannig að við röltum í Tesco, planið var að kaupa mat, og komum þangað 11 mín eftir lokun... Gaman gaman.

En já, eins og fyrr sagði þá er ekki mikið um stórar fréttir héðan. Nema kannski Danmerkuferðin, en við erum búnar að segja frá henni þannig að meira er það bara ekki. Flott.

Ok, eitt enn, við viljum jólagjafahugmyndir frá fólki sem vill jólagjafir frá útlöndum :P 

208 kr

12. nóvember 2008 klukkan 18:55
Já nú erum við komnar "heim"... Inga er búin að taka fullt af myndum af húsinu og við setjum þær væntanlega inn á morgun. Annars erum við í frekar stóru herbergi, höfum nóg pláss, svo er klósett á neðri hæðinni, klósett og bað í herbergi uppi og svo bað í herbergi við hliðina. Niðri er eldhús og svona eiginlega almennt rými (þar sem ísskápurinn okkar er) og svo er lítið sjónvarps horn sem virðist vera viðbót við húsið (og þar er geggjað kalt).

Áðan fórum við og keyptum inn, keyptum í matinn og svoleiðis. Og mjólk og morgunkorn. En já, við vorum svo áðan að elda fahitas, geggjað gott og geggjað messí.

Á morgun förum við svo að labba um hverfið og athuga hvort að við fáum vinnu einhverstaðar nálægt.

Annars erum við mikið búnar að vera að tala saman um framhaldið, ef þetta og hitt gerist (eða gerist ekki)... Það er t.d. farið að verða viðbjóðslega dýrt fyrir okkur að vera hérna, sérstaklega ef við fáum ekki vinnu. Pundið er 208 krónur já sæll þakka þér fyrir! Við erum eiginlega búnar að ákveða að ef við fáum ekki vinnu fyrir tónleikana 22. nóv þá förum við eitthvað annað (ef ekki bara heim (en samt mjög flókna leið heim :P)) 

Annars er bara búið að vera rólegt hjá okkur, lífið hefur snúist aðallega um að eltast við herbergi og leita að vinnu...

Og btw, dumm dumm dæmið í síðustu færslu var lagið Disturbia með Rihana. 

Og hvað á barnið að heita?

10. nóvember 2008 klukkan 16:50
Já já, enn og aftur erum við komnar í skólann hennar Dagrúnar að nota netið. Annars fórum við í dag í hverfi sem heitir Northenden og skoðuðum eitt stykki (reyndar þrjú stykki) herbergi. Eitt double og tvö single. Okkur leist voða vel á double herbergið og ákváðum að skella okkur bara á það. Þannig að við flytjum inn á miðvikudaginn :D Þetta er rólegt hverfi, Tesco er ekki langt frá og svo búum við með löggukonu, rútubílstýru og konu sem við vitum ekki hvað gerir (eða við heyrðum það ekki alveg, hreimurinn hérna er stundum alveg .... )

Í gær skoðuðum við annað herbergi ekkert voða langt frá skólanum, en þegar við komum þangað þá vorum við nú frekar efins. Við löbbuðum heillengi í rigningu, stoppuðum í hálftíma (út af því að við vorum hálftíma of snemma) og það kom enn meiri rigning. Og við sáum tvær hvítar manneskjur af ca 50 sem löbbuðu þarna framhjá. Manni leið pínu eins og maður væri í gettói, eða verðandi gettói.... Þannig að við skoðuðum bara herbergið og fórum svo. Já og það besta var að fólkið í húsinu vissi ekkert að við værum að koma, gaurinn var ekkert að láta þau vita.

Annars erum við bara búnar að vera rólegar og eyða mestum okkar tíma í að pæla í hádegismat/kvöldmat (gvuð hvað við erum orðnar leiðar á því að geta ekki átt mat... svona eins og að setja í ísskáp og borða seinna...). Og nú bíðum við bara eftir að einhver keppni byrji svo að við getum séð Dagrúnu syngja. 

Og svo í endann, hver fattar lagið: damm damm díramm damm damm dírammdamm :P 

Have It Your Way

07. nóvember 2008 klukkan 18:29
Jæja, við fórum og hittum Dagrúnu, frænku Rögnu, áðan og sitjum núna í skólanum hennar og notum frítt internet. Við fengum alveg ágætis ráð hjá henni, hvaða hverfi maður á að forðast og hvar homma hverfið er (þar er víst snilld að djamma). Við fengum líka að prenta út bunka af CV-um. 

Við erum búnar að setja auglýsingu fyrir herbergi á gumtree.com og höfum fengið alveg helling af svörum, sum meira að segja hljóma nokkuð vel, þannig að um helgina förum við að skoða herbergi. Þetta ætti ekki að vera mikið mál. Svo sagði Dagrún líka að það er alltaf verið að auglýsa eftir fólki á börum og kaffihúsum í þessari götu (Oxford Road) þannig að við löbbum bara á milli húsa og dreifum CV-um (og btw, er ekki bara eðlilegt að segja sévé?? Við amk gerum það alltaf :P)

Svo settum við líka fyrr í dag inn auglýsingu á gumtree fyrir vinnu en við höfum lítið heyrt frá því... En við höfum engar áhyggjur :D

Annars er mest lítið í fréttum síðan í gær. Við erum bara að missa okkur í frelsinu á netinu hérna í Royal Northern College of Music... Og nú erum við orðnar svangar og þyrftum að koma okkur til baka aftur... þannig að nóg í bili höldum við :P

Dagar eitthvað mikið, Manchester :P

06. nóvember 2008 klukkan 16:23
Æji þetta net er svo frábært, er alltaf að skipta um skoðun þannig að færslan sem við vorum búnar að skrifa glataðist. Við nennum ekki að skrifa það allt aftur, en í megin atriðum:

Ferðin hingað var glötuð. Rútan sem átti að koma um 5 leitið í gær kom einum og hálfum tíma of seint og við rennblotnuðum í rigningunni.

Hostelið er fínt, en er ekki með frítt wireless (við erum núna á Burger King). Við erum í 18 manna herbergi.

Um daginn skráðum við Inga okkur í pott til að vinna miða á One Night in Liverpool með Perez Hilton, við bjuggumst svosem ekkert við að vinna neitt. Neinei, við fengum báðar e-mail sem sagði að við hefðum unnið miða á þetta dæmi, sem var svo í gærkvöldi en ekki í kvöld. Við urðum geggjað æstar þangað til að við föttuðum að við værum búnar að missa af þessu. Bömmer.

Í dag erum við búnar að vera mest rólegar, fengum okkur hádegismat með spes gosi (ulla ulla!) og fórum svo í Manchester Eye (eða svona næstum því, munum ekki hvað þetta heitir en þetta er svona mini útgáfa af London Eye). Svo erum við bara búnar að sitja hér og reyna að láta netið virka. 

Dagar tolf, threttan og fjortan

04. nóvember 2008 klukkan 12:15
Vid erum staddar i Cambridge a netkaffi. Hostelid okkar er omurlegt ad vera ekki med wireless tengingu og thad kostar £1 korterid (sem er adeins of mikid fyrir okkur fataeka ferdamenn).

Vid vorum ad komast ad tvi ad pundid er vidbjodslega dyrt og tad finnst okkur ekki gaman. Serstaklega tar sem vid Inga erum ad boka hostel i Manchester og turfum ad fara a eftir ad kaupa mida med rutunni. Vid samt fengum fritt fra Derby til Leicester, utaf tvi ad vid vorum ad ferdast a sunnudegi og midasalan var lokud. Tetta sparadi alveg nokkur pund :)

Tad er skemmtilegt ad segja fra tvi ad vid erum saman i herbergi med gamalli konu sem fer lang seinust af okkur i rumid. Ja vid forum rosalega snemma i rumid tessa dagana, ekkert djamm a okkur!

I gaer forum vid a svona hop-on hop-off rutu og keyrdum um baeinn. Tad var agaett to svo ad tad var pinu hvasst uppi a thakinu. Svo kiktum vid a King's College og Ragna missti sig. Ja tetta er virkilega kosy baer.

Jaeja, vid timum ekki ad skrifa meira, tetta kostar alveg.... :P

Dagur níu, tíu og ellefu

31. október 2008 klukkan 17:48
[Ragna skrifar]

Já, maður er rosalega hugmyndaríkur þegar kemur að fyrirsögnum, ég held að við höldum bara áfram með þetta fyrirkomulag.

Dvölin hérna í Derby (lesist Dahby) hefur verið róleg. Snæfríður fer mun fyrr á fætur en við svefnpurkurnar og er ekki eins mikið letiblóð. Á miðvikudaginn byrjaði hún á að fara á túristamiðstöðina að redda upplýsingum, en fólkið hérna virðist ekki vita neitt rosa mikið um bæinn. Þetta er meira að segja stundum furðulegt hvað fólk veit lítið... En já, svo ákvað hún líka að fara í 8km göngutúr hérna fyrir utan bæinn. Já vinur! Við Inga skruppum bara í Westfields í staðinn og eftir tæpt þriggja tíma labb í hringi þá vorum við farin að þekkja nokkuð vel til vegar þarna inni.

Í gær fórum við svo í Chatsworth, sem er eiginlega það eina sem við ætluðum að gera hér í Derby. Það var eiginlega bara æði! Þetta var svo flott og stórt og fallegt og bara yndislegt! Og garðurinn var humongous! En svo byrjaði að rigna og það var ágætt að komast aftur heim.

Í dag var svo bara slakað á og tekið því rólega. Við fórum í Westfields til að kaupa okkur hádegismat og svo bara röltum við eitthvað aðeins. Fórum í 99pence store og keyptum okkur nammi og héldum svo bara heim á leið. Jú og við keyptum okkur eitthvað til að elda í örbylgjuofninum. Stelpurnar ætla svo í bíó í kvöld, ég nenni ekki því ég vil ekki eyða pening í James Bond (ég veit ég er skrítin ég bara fíla ekki Bond). 

Ég var að setja inn alveg hellings af myndum og ég lagaði tenglana á hinar myndirnar. Ég setti líka tengil inn á bara myndasíðuna sjálfa, þar sem hægt er að sjá öll albúmin.

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur